Iðnþing Í stuttu máli - Myndband
Iðnþing Samtaka iðnaðarins snerist að þessu sinni um vöxt og verðmæti. Farið var ofan í kjölinn á þeim efnahagsvanda sem nú blasir við og hvaða tækifæri og möguleikar eru fyrir hendi. Þingið fór fram á Grand hóteli Reykjavík 5. mars síðastliðinn. Það var afar vel sótt og þótti takast sérlega vel.
Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, opnaði þingið og kynnti helstu niðurstöður aðalfundar sem fram fór fyrr um daginn.
Fram kom hjá þeim sex framsögumönnum sem tóku til máls mikilvægi þess að takast á við verkefnin og líta björtum augum fram á veginn.
Hér má sjá brot af því besta sem fram kom á fundinum og þar fyrir neðan útdrátt úr máli þeirra sem fram komu á þinginu.
Helgi Magnússon, formaður Samtakanna, lagði áherslu á að endurnýja þyrfti gömul gildi og skapa nýtt samfélag á þeim grunni. Vaxtalækkun væri lífsnauðsynleg fyrir atvinnulíf og heimili og verðbólgu verði að lækka hratt. Bankakerfið sé ein af lífæðum atvinnulífsins og endurreisa og afnema þurfi gjaldeyrishöft. Útrás megi ekki verða að skammaryrði og mörg fyrirtæki hafi staðið fyrir farsælum fjárfestingum og viðskiptum við útlönd. Þá þurfi að ganga til aðildarviðræðna við Evrópusambandið og endurskoða gjaldmiðilsmál. Tilraunin með íslensku krónuna hafi mistekist.
Þá gagnrýndi Helgi fjölmiðla og stjórnmálamenn fyrir að einblína um of á neikvæða hluti og draga þannig kjark úr fólki. Sem dæmi nefndi hann að almenningur hafi óttast gjaldþrot ríkissjóðs þegar tölum um 2-3 þúsund milljarða skuldir ríkissjóðs hafi verið haldið á lofti í fjölmiðlum. Síðan hafi útreikningar sýnt að skuldirnar væru í raun 465 milljarðar eftir að tillit hafi verið tekið til fjárlagahalla ársins í ár. Það sé ósanngjarnt að íslensk heimili og atvinnulíf þurfi að taka afleiðingunum, en horfast þurfi í augu við staðreyndir og hefja uppbygginguna.
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra ítrekaði mikilvægi þess að Íslendingar nýttu endurnýjanlegar orkulindir sem yrðu eftirsóttari eftir því sem fram í sækti. Hann sagðist sannfærður um að olíu og gas væri að finna á Drekasvæðinu. Spurningin væri einungis í hversu miklum mæli. Alþingismenn mættu vel hlæja að þessum fullyrðingum; „En Ísland verður orðin olíuþjóð áður en mínir fætur verða kaldir.“
Iðnaðarráðherra sagði enn fremur frá miklum fjölda hugmynda í nýsköpun sem ráðuneytinu hefði borist eftir hrun bankanna. Hann lagði áherslu á mikilvægi þess að styrkja sprotafyrirtæki svo þau gætu vaxið og dafnað. Ekki síst á lokaspretti þróunar vöru og við gerð markaðsáætlana.
Ólafur Kr. Ármannsson viðskiptaritstjóri hjá Fréttablaðinu svaraði gagnrýni á fréttaflutning á þann veg að fjölmiðlar endurspegluðu það sem væri í gangi í þjóðfélaginu hverju sinni. Leitun geti verið að góðum fréttum; „ en þær hafi þó alveg ratað í fjölmiðla.“ Hann sagðist þó ekki viss um að gagnrýni ætti að beinast að fjölmiðlum. Þeirra hlutverk sé að segja fréttir, en ekki matreiða þær. Fyrir hrun bankanna hafi fjölmiðlamenn verið stoltir af útrásarfyrirtækjunum og haft gaman af því að fylgja þeim eftir. Þeir hefðu þó ekki gleymt sér í klappliðinu.
Ólafur Ísleifsson hagfræðingur ítrekaði að efldar yrðu stoðir atvinnustarfsemi í landinu. Efnahagsstefna stjórnvalda verði að miðast við að atvinnustarfsemi fái vaxið og dafnað í krafti eigin samkeppnishæfni en ekki á grundvelli verndarstefnu eða enn aukinna opinberra útgjalda.
Endurreisn blasi við með lækkun stýrivaxta. Bæta þurfi skattalegt umhverfi til atvinnurekstrar, gera bankana starfhæfa og hæfa til að veita atvinnulífinu samkeppnishæfa þjónustu til rekstrar og uppbyggingar. Afnema þurfi gjaldeyrishöft og samninga við eigendur krónubréfa til að greiða fyrir frjálsum gjaldeyrisviðskiptum. Þá muni samningar við Evrópusambandið um gjaldeyrismál tryggja Íslendingum aðild að evrópsku myntsamstarfi. Það þurfi að eiga sér stað eins skjótt og kostur er.
Rannveig Rist, forstjóri Ísal í Straumsvík, sagði á þinginu að það væri alger misskilningur að nýsköpun í atvinnulífinu og stóriðja færu ekki saman. Þvert á móti hafi álverin verið vettvangur fyrir sprotafyrirtæki. Fjölmargar vélar og tæki, sem hafi mikla þýðingu fyrir framleiðsluferlið í Straumsvík, séu íslensk hönnun og framleiðsla. Nokkrir hugvitsamir starfsmenn álversins hafi stofnað fyrirtækið Stími sem hanni nýjan háþróaðan, tölvustýrðan vélbúnað sem hafi stórbætt framleiðsluferli fyrirtækisins. Sumar uppfinningar þeirra hafi vakið verulega athygli í áliðnaði á heimsvísu og fyrirtækið selji nú vélar og tæki í álver út um allan heim.
Uppbygging ál- og orkuiðnaðar á Íslandi hafi átt stóran þátt í að efla verkfræðiþekkingu á Íslandi á undanförnum áratugum.
Gylfi Zoega hagfræðingur ræddi um deilumál við Breta, Hollendinga, erlenda lánadrottna og önnur mál. Óvissa með úrlausn þeirra og framtíðarskuldbindingar hefði slæm áhrif á almenning. Upplýsingagjöf embættismanna blandist þar á ofan gjarnan saman við pólitík. Hann sagði Þjóðhagsstofnun hafa varað við sams konar atburðarrás. Þekkingin hefði verið til staðar þar. Þekking sem skorti hjá ríkinu. Hagfræðin hefði þó ekki brugðist eins og haldið hefðir verið fram, heldur hafi skilaboðin ekki verið tekin alvarlega.
Gylfi lagði áherslu á að bankakerfi landsins þurfi að vera í lagi og nauðsynlegt sé að hafa lánstraust í útlöndum. Samskipti við nágrannalöndin þurfi líka að vera góð. Semja þurfi við erlenda lánadrottna því ríkið geti ekki borið þær skuldir. Framtíðin sé annaðhvort með höftum eða með aðild að Evrópusambandinu. Góð lífskjör geti verið í boði fyrir Íslendinga þegar búið sé að laga efnahagsreikningana.
Kristín Ingólfsdóttir rektor við Háskóla Íslands fjallaði um reynslu annarra þjóða af efnahagsáföllum. Virkasta andsvar þeirra við krepputímum hafi verið að efla menntun, rannsóknir og nýsköpun. Háskólinn fylgi nú stefnu sem mótuð var fyrir þremur árum um afburðaárangur á þeim sviðum. Á tímabilinu hafi birtingum greina um niðurstöður vísindarannsókna fjölgað um 68% í kröfuhörðum alþjóðlegum tímaritum. Meira en helmingi fleiri styrkir hafi fengist úr erlendum samkeppnissjóðum og sértekjur hafi aukist verulega. Í samanburði við önnur lönd þyrftu doktorsnemar þó að vera fleiri hér á landi. Á síðast ári hafi þeir verið 23 en ættu að vera 62-100.
Kristín benti á að fjöldi sprotafyrirtækja hefði myndist við þróun vísindarannsókna. En það þurfi líka að huga að því sem vel hafi tekist. Endursköpun sé annað form nýsköpunar og verðmætasköpunar. Íslendingar séu meðal annars leiðandi í heiminum í nýtingu endurnýjanlegrar orku.
Arna Schram blaðamaður á Viðskiptablaðinu sagði mikilvægt að styðja Ísland og samfélagið allt, meðal annars með því að kaupa íslenskar vörur, en þær þurfi að vera samkeppnishæfar.
Umræðan um Evrópusambandið sé föst í ákveðnum hjólförum og virðist hafa dottið niður í samfélaginu. Framþróun þurfi að verða í þeim málum. Meirihluti sé nú ekki hlynntur inngöngu í ESB. Samfylkingin sé einn stjórnmálaflokka sem hafi haldið málinu á lofti. Skynsamlegt sé að fara í viðræður og athuga hvað fengist út úr þeim. Niðurstaðan yrði borin undir þjóðina.
Jón G. Hauksson frá Frjálsri verslun sagði mjög mikilvægt að missa ekki niður hringrás landsframleiðslu. Samkeppnishæfni hafi aukist með lækkun launa. Koma þurfi stýrivöxtum niður í 1% svo atvinnulífið kafni ekki. En auka þurfi framleiðni í iðnaði
Þá sé mikilvægt að kaupa íslenskar vörur og ákveðin bjartsýni skipti máli; „Ef við búum við 10% atvinnuleysi þá eru 90% með atvinnu á Íslandi.“
Aðild að Evrópusambandinu er algjör nauðsyn að mati Jóns. Evra sé ekki skammtímalausn fyrir krónuna, en byggja þurfi upp framtíðarsýn þar sem það taki nokkur ár áður en Ísland fái að taka upp evru. Umsókn í ESB og upptaka evru sé forvörn fyrir íslenska þjóð og íslenskt atvinnulíf sem ekki vilji ganga í gegnum aðra eins kreppu og nú; „Við bara nennum þessu ekki lengur.“
Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyrir Invest,
Aðild Íslands að Evrópusambandinu er ekki valkostur heldur brýn nauðsyn að mati Þórðar Magnússonar, stjórnarformanns Eyris Invest. „Aðkoma Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að stjórn efnahagsmála á Íslandi hefur aukið traust á okkur en það sama myndi gerast með aðildarumsókn okkar að Evrópusambandinu. Við eigum mikið undir því að öðlast traust á alþjóðavettvangi,“ sagði Þórður og bætti við að óbreytt ástand gengi ekki til lengdar: „Án aðildar munu fyrirtækin okkar ekki geta vaxið nema flytja höfuðstöðvar til útlanda. Einhliða upptaka evru er heldur ekki valkostur.“
Þórður lagði þunga áherslu á að bætt lífskjör þjóðarinnar héldust í hendur við árangur okkar í alþjóðavæðingu og frekari útflutningi. „Mælikvarði á árangur er aukning útflutningsverðmæta fremur en vöxtur í landsframleiðslu. Það eykur getu okkar til að greiða niður erlendar skuldir og auka velmegun,“ sagði Þórður.

