Stöðugleiki forsenda vaxtar og verðmætasköpunar
Án stöðugleika er tómt mál að tala um heilbrigðan vöxt og sköpun verðmæta, en án verðmæta getum við ekki tryggt velsæld þegnanna. Þetta segir Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri SI, í riti Iðnþings 2009, Vöxtur og verðmæti – Mótum eigin framtíð.

Ólafur Ísleifsson, hagfræðingur og lektor við Háskólann í Reykjavík, ritstýrir Iðnþingsritinu að þessu sinni. Í því eru fjölmargar greinar er lúta að tækifærum á vexti og verðmætasköpun hér á landi auk þess sem rætt er um efnahagsmálin.
Jón Steindór segir að mestu skipti að stöðugleiki sé varanlegur og traustur og byggi á mörgum traustum stoðum efnahagslífsins.
„Okkar bíður erfitt en alls ekki óyfirstíganlegt verkefni. Það verður hvoru tveggja í senn að takast á við verkefni til skamms tíma og langs. Úrlausn annars styður úrlausn hins.“
Íslendingar geti ekki treyst á eigin mynt og peningamálastjórn. Því þurfi að leita vars í skjóli af samstarfi innan Evrópusambandsins; „Í því felst ekki uppgjöf heldur sýnir það styrk að hafa vit á því að sækja sér liðsauka í erfiðum verkefnum,“ segir Jón Steindór.
Rit Iðnþings 2009 Vöxtur og verðmæti – Mótum eigin framtíð (PDF skjal)