• Idntingslogo

Iðnþing í beinni útsendingu í fyrsta sinn

Iðnþing Samtaka iðnaðarins sem fram fer á Grand Hóteli Reykjavík í dag verður í beinni útsendingu á netinu. Þetta er í fyrsta sinn sem hægt verður að fylgjast með opinni dagskrá þingsins beint hér á vef Samtakanna. Iðnþingið stendur yfir frá klukkan 13:00 til 16:00.

Iðnþing Samtaka iðnaðarins sem fram fer á Grand Hóteli Reykjavík í dag verður í beinni útsendingu á netinu. Þetta er í fyrsta sinn sem hægt verður að fylgjast með opinni dagskrá þingsins beint hér á vef Samtakanna. Útsendingin er hugsuð sem þjónusta við þá sem ekki komast á þingið. Dagskráin hefst klukkan 13:00 og stendur til klukkan 16:00.

Aðalfundur Samtakanna hefst klukkan 10.00 og er eingöngu opinn félagsmönnum. Þar fara fram hefðbundin aðalfundarstörf og einnig er greint frá úrslitum í kjöri til stjórnar.

Umfjöllunarefni Iðnþings að þessu sinni er Vöxtur og verðmæti – Mótum eigin framtíð. Þar verður fjallað um efnahagsmálin, tækifæri og framtíðarmöguleika auk þess sem viðhorf fólks í iðnaði verða kynnt í stuttum myndbrotum.

Þeir sem koma fram á þinginu eru Helgi Magnússon, formaður SI, Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi, Ólafur Ísleifsson, lektor við Háskólann í Reykjavík, Kristín Ingólfsdóttir rektor Háskóla Íslands og Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyris.

Fundarstjórarnir, Sölvi Tryggvason og Svanhildur Hólm Valsdóttir, munu einnig taka stutt viðtöl við nokkra góða gesti.

Nánari upplýsingar er að finna hér.