Efni tengt Iðnþingi 2008

Iðnþing fimmtudaginn 6. mars 2008 verður helgað Evrópumálum

Iðnþing verður fimmtudaginn 6. mars á Grand Hótel Reykjavík.

Iðnþing hefst kl. 10 um morguninn þegar félagsmenn koma saman til hefðbundinna aðalfundarstarfa.

Eftir hádegið hefst opinn fundur og þá taka Samtök iðnaðarins Evrópumálin á dagskrá.

Fundurinn hefst kl. 13 og þar taka til máls:

  • Helgi Magnússon, formaður
  • Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra
  • Illugi Gunnarsson, alþingismaður
  • Valgerður Sverrisdóttir, alþingismaður
  • Jón Karl Ólafsson, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar
  • Sigrún Davíðsdóttir, blaðamaður
  • Hörður Arnarson, forstjóri Marel Food Systems hf.

Auk erindinna verða sýnd fjögur stutt myndbrot um fundarefnið og er þar rætt við innlenda og erlenda sérfræðinga og álitsgjafa.

Á þinginu verður einnig lagt fram rit sem hefur verið tekið saman um helstu þætti sem snerta aðild Íslands að Evrópusambandinu og upptöku evru.

Árshóf Samtaka iðnaðarins verður föstudaginn 7. mars og hefst kl. 19:30 á Grand Hótel.

Nánari dagskrá verður kynnt síðar.